AM 470 4to (Hvammsbók, corrections), 1620-1670: text. Main text from *Gullskinna.
79 Síðan fór hann (Jall) suður með herinn & var Kári þar (í ferð með honum) & Njálssynir þeir komu (sudr) við Katanes. Jarl átti þessi ríki í Skotlandi Rós og Minæfi (muræfe), Suðurlǫnd & Dali. (komu þar í móti þeim menn af þeim ríkjum Og sögðu að Jarlar voru þaðan skammt á brott með mikinn her) Sugurður Jarl spurði þá til Jarlanna (þá sneri Sugurður Jarl þangað herinum) og snýr til móts við þá, og heitir þar Dúngals (Dugals) nípa er fundurinn varð (fyrir ofan) Sló þar í bardaga með þeim Skottar hǫfðu látið fara sumt lið laust og kom það í opna skjǫldu Jarls mǫnnum & varð þar mannfall mikið. Sneru Njálssynir þá (þar til Njálssynir sneru) á móti þeim og bǫrðust við þá og komu þeim á flótta. (verður þá bardagi harður) Snúa þeir Helgi þá framm hjá merki Jarls og berjast vel. Kári snýr þá á moti Melsnadde (snata) Jarli (Melsnati skaut spjóti að Kára Káre hendi og skaut aftur spjótina og) og skaut spjóti í gegnum Jarl, En Hundi jarl flýði þá. Þeir ráku þá flóttann, allt til þess er þeir spurðu að Melkólfur dró her saman (i dugals bae Átti Jarl þá ráð við menn sína og sýndist öllum að snúa aftur og berjast ei við svo mikinn landher) Sneru þeir þá aftur til Straumseyjar ok skiptu (þeir) þar herfangi. Fór Jarl þá (norður) til hrosseyar (Njálssynir fylgdu honum og Kári) og gerði (hann) þar veislu (mikla) og að þeirri veislu gaf Jarl Kára sverð gott og spjót gullrekið en Helga gullhring og skikkju, Grimi skjǫld og sverd. Eftir þæð gerði hann þá Grím og Helga hirðmenn sína, og þakkaði þeim framgöngu góða og voru þeir með Jarli þann vetur, en um sumarið fóru þeir í Hernað með Kára (Þeir herjuðu víða) og fengu þeir hvervetna sigur Þeir börðust við Guðröð (Guthorm) konung úr Mön og sigruðu hann og fóru með það aftur og höfðu fengið mikið fé. Voru þeir (en) með Jarli um veturinn. 80. Um vorið beiddust Njálssynir að fara til Noregs Jarl bað þá fara sem þeim líkaði, og fékk þeim gott skip (og röskva menn) Kári sagði þeim, að hann mundi þetta sumar koma til Noregs með skatta (Hákonar) Jarls og þeir mundu þar finnast (og sammæltust þeir á það) Fóru Njálssynir og ljettu ei fyrr en þeir komu til Noregs & komu við Þrandheim.
AM 464 4to, 1697: text.
Cap. 92. Bardagi med Jórlum. Siðan för Jarl suðr med herinn, ok Kari i ferð með honum, ok sva Nials synir, þeir komu suðr við Katanes, Jarl ätti þessi riki i Skottlandi, Ros ok Muræfi Syðrlónd ok Dali, komu þar i moti þeim menn af þessum rikium, ok sógðu at Jarlar voru þaþan skamt ä brott með mikinn her, þa sneri Sigurðr Jarl þangat herinum, ok heitir þar Dugäls nypa, er fundrinn varð fyrir ofan. ok lavst i bardaga með þeim. Skottar hófdu lätit fara sumt liðit lavst ok kom þat i opna skióllda Jarlzmonnum, ok varð þar mannfall mikit, þar til er Nials synir sneru ä möti þeim, ok bórðuz við þa, ok komu þeim a flötta, verðr þa bardagi harðr, Sneru þeir þa helgi fram hia merkinu Jarlz, ok bórðuz vel. Nu snyr Kari moti Melsnata Jarli Melsnate skavt spiöti at Kära, Käri hendi, ok skavt aptr spiötenu i gegnum Jarlinn, þa flyði hundi Jarl enn þeir räku flöttann allt þar til er þeir spurðu þat til Melkölfs Jarls at hann drö her saman i Dungalsbæ. ätti Jarl þa räð við menn sina, ok syndiz óllum þat räð at snua aptr, ok beriaz eckj við sva mikinn landher, sneru þeir þa aptr, enn er jarl kom i Straumey, skiptu þeir þar herfängi, siðan foru þeir norðr til Rosseyiar. Nials synir fylgdu honum ok Käri, jarl gerði þa veizlu mikla, ok at þeirri veizlu gaf Jarl Kära sverð gött ok spiöt gullrekit, enn helga gullhring ok skickiu, enn Grimi skiólld ok sverð, eptir þat gerði hann þa hirðmenn sina Grim ok helga, ok þackaði þeim goða frammgóngu, þeir voru með Jarli þann vetr, ok um sumarit, þar til er Käri för i hernað, þeir foru með honum, ok heriuðu viða um sumarit, ok fengu hvervetna sigr. þeir bórðuz við Guthorm kong or Món ok sigruðu hann, ok foru við þat aptr, ok hófðu fengit mikit fe, ok voru enn með jarli um vetrinn, enn um varit beidduz þeir Nials synir at fara til Noregs, Jarl mælti, at þeir skolldu fara, sem þeim likaði, ok feck þeim gott skip ok róskva menn. Käri sagði, at hann myndi þetta sumar koma til Noregs með skatta hakonar Jarls ok myndu þeir þa finnaz, ok sva kom at þeir sammælltuz ä þat, siðan letu þeir Nials synir ut, ok sigldu til Noregs ok komu norðr við þrandheim.